Hætt að bloggaÞórunn Elva Bjarkadóttir
kv. Þórunn
Heil og sælÞórunn Elva Bjarkadóttir
Var búin að blogga fullt en það datt allt út.........nenni ekki að gera það aftur.
Einhver ládeyða í kollinum á mér, kjaftar alla vega ekkert á mér hver tuska. Verð að fara að setja í annan gír og vaða i fyrirliggjandi verkefni..........
Týbísk verslunarmannahelgi framundan; tjöld farin að fjúka á þjóðhátíð og rigning í Galtalæk! Veðrið klikkar aldrei þessa helgi. Spurning um að fara að flýja land um óráðinn tíma....? Hver veit? Á vit ævintýranna....
Gangið nú hægt um gleðinnar dyr um helgina.
Orð dagsins
" Ef maður er hamingjusamur getur maður aldrei farið of snemma á fætur."
Kamilla Elbott
-Þórunn
Í sól og sumarylÞórunn Elva Bjarkadóttir
Annars er ekki mikið að frétta. Ég er að fara til Mallorca á þriðjudaginn, bara gaman.
Svo fer að líða að því, hvað úr hverju, að maður fari að vinna aftur, eða um miðjan ágúst. Það er alveg fínt, verð reyndar með alveg svakalega mikla kennslu....en það er svo sem ekkert nýtt.
Sumarið í hnotskurn hingað til er búið að einkennast af 30 ára afmælum og brúðkaupum, og enn er sá veislukvóti ekki fylltur! En jæja, ætla út í sólina.
Hafið það nú gott um helgina hvort sem þið sitjið heima í sófanum, í útilegunni, í sumarbústaðnum eða hvar sem þið verðið.....
-Þórunn
Orð dagsins
"Áhyggjur okkar sjálfra geta verið verstar af öllum lygurum í heimi"
Enn um HM..........Þórunn Elva Bjarkadóttir
En jæja, þarf að bíða í 2 ár eftir EM 2008 til að fá uppreisn æru.
Veðrið hér á Íslandi búið að vera viðbjóður....maður er náhvítur og veiklulegur eftir 2 mánaða sumarfrí...hversu fáránlegt er það? Vonandi að það fari nú eitthvað að lagast
Það eru nokkrir leikmenn sem mér finnast hafa verið alveg súper góðir í þessari keppni, að vísu hefur vantað aðeins upp á litríku leikmennina sem oft hafa sett svip sinn á þessi mót, ja eða litríku liðin! Hver man ekki eftir liði Kólumbíu á HM 1990? Með Valderama í fararbroddi og frábæra-en þó mistæka- markmanninn Rene Higuita sem var oftar í sókn en í markinu
Mér finnst sem að fótboltamenn nútímans taki ekki nógu mikla áhættu, leikgleðin er á undanhaldi sem sýndi sig einna best í leik Brasilíumanna sem þekktir eru fyrir leikgleði og "sambabolta"-þeir höfðu nákvæmlega ekkert gaman að þessu og uppskáru farmiða heim.....Ronaldinho sem ég vil meina að sé mesti floppari mótsins-hann var bara eins og léleg Elvis-eftirherma...líktist þessum afburða leikmann í útliti en þegar kom að tilburðunum þá veit ég ekki hvað við erum að tala um!!! Ég get tekið fleiri lið sem dæmi í þessu, auðvitað Englendingana mína, en þar var alveg greinilegt að leikmenn voru taugatrekktir og í raun skelfingu lostnir....Enginn vildi taka af skarið...Enginn vildi verða blóraböggull bresku pressunnar...Og lái þeim hver sem vill!! Beckham lenti í þessu í HM 1998 og aldrei fyrr né síðar hefur leikmaður verið afhausaður með jafn afgerandi hætti í bresku pressunni! Hann reyndar svaraði því með því að vinna 3 titla með Man Utd á næstu leiktíð á eftir
En það er mitt mat að breskir fjölmiðlar töpuðu HM fyrir Englendinga! Verði þeim að góðu!
En úrslitaleikur Ítala og Frakka framundan, ég ætla ekki að horfa á leik Portúgala og Þjóðverja um 3. sætið...dissa þann leik! Það spyr enginn að því hver lenti í 3. sæti í HM? Þessi keppni snýst annað hvort um sigur eða ósigur...aðeins eitt lið sigrar en 31 lið tapa!!! Þannig er það nú bara.
Áfram Ítalía
HM draumurinn útiÞórunn Elva Bjarkadóttir
Svo ætlar Beckham að hætta sem fyrirliði-djöfullinn sjálfur! Þetta er ömurlegt! Hvað er Sven Jöran að kalla Rooney gulldreng-vá alltof mikið treyst á þennan skaphund! Og afhverju kann Sven Jöran ekki að tala ensku-er þetta ekki búið að búa í Englandi í mörg ár??? Ég er ekki hrifin af því að Steve McLaren eigi að vera þjálfari, hann er ábyggilega fínn-en ég vil fá einhvern ferskan þarna inn-það þarf að slútta þessum Man Utd áhrifum í landsliðinu!! Afhverju ekki að fá bara Gary Lineker, ég meina Klingsman er að gera góða og ferska hluti með þjóðverjana... En hvað veit ég svo sem?
Veit satt best að segja ekki með hverjum skal halda núna, frakkaaumingjarnir komnir áfram! Þoli þá ekki (Zidane er reyndar fínn-enda Real Madrid maður), en var samt ánægð að þeir sendu Brassana heim sem hafa ekki getað drullu í þessari keppni. Er líka sátt að Argentínumenn séu farnir heim-þeir líta allir út eins og hestar! Þoli ekki heldur Þjóðverja og Portúgalar eru gjörsamlega óþolandi vælukjóar og vitleysingar-ætla aldrei aftur til Portúgal
JúníÞórunn Elva Bjarkadóttir
En það er svo sem nóg að stússast í sumar, mörg brúðkaup, afmæli og fleira á döfinni og svo eru 8 liða úrslitin í HM framundan um helgina, HM er gjörsamlega búið að vera það sem ég hef haft fyrir stafni í sumar, hvort sem ég hef verið á landinu eða ekki
Áfram England
-Þórunn
JúníÞórunn Elva Bjarkadóttir
Viðburðarrík og góð helgi að baki. Fórum í þetta fínasta brúðkaup á laugardaginn og skemmtum okkur konunglega. Guðmundur Bjarki var hjá ömmu og afa í sveitinni á meðan þar sem hann unir sér nú alltaf afar vel
Er orðin aðeins liðtækur í sveitastörfin, þó svo að traktorinn heilli nú alltaf lang mest. Enda fékk hann að sitja með afa sínum í traktornum þegar hann var að rúlla. Ekki þótti mínum manni það nú leiðinlegt.
Við erum öll í fríi núna familían, erum að velta fyrir okkur að skjótast kannski eitthvað í vikunni 2-3 daga hér innanlands-þó ekkert ákveðið, maður ber náttúrulega líka ákveðna skyldurækni til HM, ekki fer maður að missa af lokasprettinum þar.
En annars bara lítið að frétta héðan af Sólvöllunum-þannig!
"Dagurinn í dag er morgundagurinn sem þig dreymdi um í gær"
-Þórunn
Júní 2006Þórunn Elva Bjarkadóttir
Mikið var ljúft í Amsterdam, 30 stiga hiti og sól
Ekki amalegt það. Smá sól hér í morgun, enda sá maður fullt af móðursjúkum konum hlaupa í sundlaugina snemma í morgun til að ná smá skini á kroppinn áður en mæta þurfti í vinnu. Fyndið. Sumir sjá sólina í því samhengi að verða brúnn á skrokkinn og stressast hreinlega upp við að ná þessum örfáu sólarglætum sem við fáum yfir sumartímann fyrir nokkrar freknur!
HM er í algleymingi hjá mér. Mitt lið var að keppa í gær (England) og þokkalega var ég upptjúnuð yfir því. Verst hvað þetta er tímafrekt að horfa á þetta, ég stend mig orðið að því að skipuleggja daginn og það sem þarf að gera út frá því hvenær leikirnir eru spilaðir...Já, já svona er þetta bara
Vonandi missi ég ekki af stórum leik á laugardaginn, er nefnilega að fara í brúðkaup, ég get víst ekkert breytt tímasetningunni á því![]()
Tjónið hjá Alcoa bara rúmir 4 milljarðar....USS...ekki á það bætandi fyrir íslenskt efnahagslíf...Held að ráðamenn þjóðarinnar ættu aðeins að fara að staldra við og skoða efnahagsmálin í staðinn fyrir að vera í ráðherraskiptaleik...þetta minnir mann á margt um þegar börnin voru að skipta á pokémonsspjöldin þessi ráðherraskipti!!! Annars finnst mér margt benda til þess ef að maður horfir á stjórnmálin í dag að Sjálfstæðisflokkurinn sé orðinn sósíalistaflokkur eins og sósíalisminn var hugsaður í upphafi; með það að meginmarkmiði að hjálpa lítilmagnanum að komast af; nema í þessu tilfelli er lítilmagninn Framsóknarflokkurinn!!!
Bull og vitleysa!!!
-Þórunn
JÚNÍÞórunn Elva Bjarkadóttir
Einhvern veginn líitið að segja í dag, gæti röflað eitthvað um HM, veðrið eða um pólitík en hugsa að ég láti það eiga sig að sinni. Það er nóg fjallað um það fjölmiðlum landsins. Við hjónin erum að fara til Amsterdam í nótt. Ákváðum að flýja land vegna veðurs
Líka búin að vera hitabylgja á þessum slóðum, 28 stiga hiti þar í gær þannig að það er aðeins betra en hér. Lentum þó í smá basli við þegar við vorum að ákveða hvert skyldi halda, því jú sjáiði til það þarf að vera borg þar sem það er pottþétt að við getum fylgst með HM á sportpöbbum, og þar sem Hollendingar eru í Hm þá er það alveg ideal
En bið að heilsa í bili og eigiði góða 17. júní helgi.
"Snú andliti þínu mót sólinni - þá sérð þú ekki skuggana."
-Þórunn
07.06.06Þórunn Elva Bjarkadóttir
Það er eitt sem er á hreinu, það er það að mér finnst rigningin EKKI góð, þó svo Helgi Björns hafi sungið það um árið. Það væri nú gott ef að sumarið færi aðeins að láta kræla á sér![]()
Lítið að frétta annars, það er útskrift hjá mér úr HA á laugardaginn á Akureyri, ég nenni samt ekki að mæta-þetta eru nú ekki skemmtilegustu athafnirnar þessar brautskráningar. Fæ bara draslið sent í pósti![]()
HM í fótbolta byrjar á föstudaginn, ég er með svona stórmótasýki þegar kemur að fótboltanum, ég fylgist aldrei með boltanum svona dagsdaglega-en um leið og EM og HM skella á þá er ég orðinn sérfræðingur í öllu er kemur að fótbolta-hvort sem um ræðir þá sem manna liðin-leikstíl liðanna og aldur og fyrri störf! Já, já ég er frekar halló þegar að þessu kemur. Ekki er á það bætandi að ég verð eins og versta fótboltabulla ef mitt lið (England) tapar. Ekki mönnum sinnandi lengí á eftir
. En ég hef gaman af þessu engu að síður og það er það sem blivar, ekki satt?
En jæja, læt þetta gott heita í rigningunni
-Þórunn